TILKYNNING FRÁ SYNDIS 30.04.24

Endurskoðun verðskrár

Í kjölfar reglulegrar endurskoðunar á verðskrá vegna vinnu og þjónustusamninga mun Syndis hækka einstaka þjónustuþætti. Hækkun mun taka gildi frá og með 01. júní 2024. Þessi breyting á verðskrá mun ekki ná til samninga sem eru vísitölutryggðir.

Með hagræðingu hefur okkur tekist að stilla breytingum í hóf og er kostnaðarauki Syndis meiri en sem nemur þessari breytingu.